Belle poncho – uppskrift og garn
Sandnesgarn15.063 kr.
Lýsing
Belle poncho er glæsileg og glitrandi flík, prjónuð úr einum þræði af PALJETT og einum þræði af Tynn Silk Mohair. Hún er prjónuð í einu stóru stykki með sléttprjóni, áður en stykkið er brotið saman og saumað til að mynda hálsmálið.
Mjúk og létt síðkápa með örlitlum glampa sem setur punktinn yfir i-ið á hvaða klæðnaði sem er. Fullkomin yfir bæði kjóla og boli þegar þú vilt vera extra fín.
Uppskriftin er á norsku. Prentaður uppskriftabæklingur fylgir frítt með garninu og hann inniheldur QR kóða þar sem hægt er að skoða uppskriftina rafrænt. Hver einstök prjónauppskrift er aðeins seld með garni í flíkina.
Nánari upplýsingar
Ponchoið/sjalið er prjónað í einu stóru stykki með einum þræði af hvorri garntegund. Fyrst eru fitjaðar upp lykkjur fyrir annan stutta kantinn og prjónað sléttprjón þar til fullri lengd er náð. Að því loknu er stykkið brotið saman og lítill hluti af langhliðinni saumaður saman til að mynda hálsmálsop.
Ráðlögð prjónastærð: Prjónar nr. 6.
Prjónfesta: 14 lykkjur = 10 cm.
Garnmagn
| Ein stærð | |
|---|---|
| Paljett 1090 Black Tie Twinkle | 3 |
| Tynn Silk Mohair 1099 svart | 3 |
Fjöldi dokka. Garnmagnið miðast við uppgefin mál. Ef flíkin á að vera lengri gæti þurft meira garn.
