Vale toppur – uppskrift og garn
Frá 7.785 kr.
Lýsing
Vale-toppurinn er glitrandi og ósamhverfur toppur sem er prjónaður ofan frá og niður úr garninu Paljett. Hann hefur spennandi lögun með axlarbandi á annarri hliðinni og skáhallt hálsmál sem gefur honum nútímalegt útlit. Glæsilegur og áberandi toppur sem hentar fullkomlega við hátíðleg tilefni eða þegar þú vilt bæta örlitlum glampa við klæðnaðinn.
Uppskriftin er á norsku. Prentaður uppskriftabæklingur fylgir frítt með garninu og hann inniheldur QR kóða þar sem hægt er að skoða uppskriftina rafrænt. Hver einstök prjónauppskrift er aðeins seld með garni í flíkina.
Nánari upplýsingar
Toppurinn er prjónaður ofan frá og niður og hefur ósamhverfa lögun með axlarbandi öðrum megin. Fyrst eru lykkjur fitjaðar upp fyrir framstykkið, sem er prjónað fram og til baka með útaukningum fyrir hálsmáli og handvegi. Bakstykkið er prjónað á sama hátt og síðan eru stykkin sameinuð undir öðrum handveginum.
Áfram er prjónað fram og til baka með útaukningum fyrir hálsmáli. Að lokum er verkið sameinað undir hinum handveginum og prjónað í hring þar til toppurinn hefur náð fullri lengd.
Ef vill má þræða þunna teygju í faldinn við hálsmálið svo toppurinn sitji betur.
Þetta er aðsniðin flík með neikvæðri hreyfivídd (þ.e. flíkin er þrengri en líkamsmálið). Við mælum með að taka mál rétt fyrir neðan brjóstin og velja stærð út frá þeirri mælingu.
Fyrirsætan er 179 cm á hæð og klæðist stærð S.
Ráðlagðar prjónastærðir: Prjónar nr. 2,5 og nr. 3.
Prjónfesta: 23 lykkjur = 10 cm.
Aukahlutir: Mögulega þunn teygja í hæfilegri lengd.
Stærðartafla
| XXS | XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Yfirvídd | 63 cm | 68 cm | 73 cm | 78 cm | 83 cm | 88 cm | 94 cm | 103 cm | 114 cm |
| Sídd | 48 cm | 50 cm | 52 cm | 55 cm | 57 cm | 60 cm | 62 cm | 65 cm | 68 cm |
Stærðirnar eru til viðmiðunar og mælt er með því að taka mál af þeim sem á að nota flíkina. Uppgefin mál miðast við tilgreinda prjónfestu.
Garnmagn
| XXS | XS | S | M | L | XL | 2XL | 3XL | 4XL | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Paljett | 3 | 3 | 3 | 4 | 4 | 4 | 5 | 5 | 6 |
Fjöldi dokka. Garnmagnið miðast við uppgefin mál. Ef flíkin á að vera lengri gæti þurft meira garn.
